kæru vinir vandamenn og aðdáendur

Vaknaði um hálf ellefu í morgun... það voru 21 missed call á
símanum mínum

og Ann átti 17 svo ég hringdi í hana og viti
menn... það var sprungið á Rauðhettu og sumum litlum ónefndum
prinsessum hafði láðst að gera við varadekkið .. hmm hm afsakið
kiðagið


Svo að ég fór með strákana í gæslu og brunaði
eftir þeirri norsku, fórum með dekkið í viðgerð og ég fór svo
að versla inn fyrir 22...
Eftir smá vinnu og innkaupaferð fór ég og náði í Ann og svo
dekkið... hringdi í sjálfann Bassafantinn og hann ætlaði að hitta
okkur hjá Rauðhettu og skella dekkinu undir

gott að eiga
góða vini.. stundum ekki eins gott að eiga prinsessuvini

Nota
bene þá var bíllinn fyrir framan top shop húsið... annsi
áberandi... ég alla vega byrjaði að tjakka upp bílinn.. fór svo að
reyna að leysa rærnar..

alveg orðin drulluskítug og fjólublá
í framan.. þá kom til mín herramaður, og hann hafði þetta að segja
"maður leysir nú yfirleitt rærnar fyrst og tjakkar svo upp
bílinn!" þarna fór liturinn í andlitinu á mér frá fjólubláu og yfir
í rautt

En kauði leysti alla vega rærnar fyrir mig

og svo
var ég nýbúin að taka dekkið af er Þröstur mætti galvaskur og
kláraði dæmið fyrir mig

Takk Þröstur... þú rokkar
'Eg fór svo og náði í strákana og við héldum á heilsugæsluna því að
Pattamúsin var með flís og það var farið að grafa í henni... það
endaði með því að við vorum send á slysó

heilsugæslustöðvarnar
taka víst ekki flísar úr fólki

..
Patrekur var alla vega mjög duglegur.. við fengum bestu hjúkkuna
Auði Karen sem var besta vinkona mín er við vorum litlar. Læknirinn
sagði honum að leggjast á magann og ekkert mál minn gerði það.. svo
var hann tekinn úr sokknum og þá fór lillinn aðeins að gægjast á
doksa.. og svo sá hann nálina og hnífinn


"ÞÚ
STINGUR ÞESSU EKKI FÓTINN MINN" og þá þurftum ég Auður og
doksi að leggjast á eitt og halda þeim stutta



ég
myndi líka vera brjáluð ef að einhver væri að stinga mig í fótinn


Alex Nökkvi kom hlaupandi inn til að athuga með bróður
sinn, sagði að öskrin hefðu heyrst út um allt

. En svo
náðist flísin og gröfturinn og þá hætti minn undireins og fékk
verðlaun og stóri brói líka... takk fyrir okkur kæra fagfólk. Það
var reyndar svolítið skondið að það var Auður og sami doksi sem
saumuðu mig saman eftir að ég fékk kaffivélina í andlitið á
Ellefunni


.. 'Eg keyrði svo strákana til Ingunnar og
fór að vinna


Skrifa ykkur kannski eð meira í kveld mæ kjútípæs